Enski boltinn

Dýrasti leikmaður Bournemouth frá út tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mings kom til Bournemouth fyrir metfé í sumar.
Mings kom til Bournemouth fyrir metfé í sumar. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Bournemouth varð fyrir miklu áfalli þegar í ljós kom að vinstri bakvörðurinn Tyrone Mings verður frá keppni út tímabilið vegna slitins krossbands.

Mings, sem kom til Bournemouth frá Ipswich í sumar fyrir metfé, meiddist illa í leik Bournemouth og Leicester City á laugardaginn.

Mings kom inn á sem varamaður í hálfleik en þurfti að fara af velli aðeins 11 mínútum síðar eftir að hafa tæklað Danny Drinkwater, leikmann Leicester.

Sjá einnig: Góðhjartaði bakvörðurinn fær tækifæri í úrvalsdeildinni

Bournemouth varð fyrir öðru áfalli í leiknum gegn Leicester þegar kantmaðurinn Max Gredal meiddist en ekki er vitað hversu lengi hann verður frá.

Leik Bournemouth og Leicester lyktaði með 1-1 jafntefli en Bournemouth er með fjögur stig eftir fjórar umferðir í úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×