Glamour

Dýrasta forsíða fyrr og síðar?

Ritstjórn skrifar
Glamour
Tvö af stærstu og valdamestu nöfnunum í tískuheiminum, þau Carine Roitfield fyrrum ritstjóri franska Vogue, og Karl Lagerfeld munu saman prýða forsíðu tímaritsins The Daily Front Row

Tilefni útgáfunnar er LA Fashion Awards sem haldin verða þann 20. mars þar sem meðal annars Lady Gaga, Carine Roitfield og Bella Hadid verða verðlaunuð. 

Þau Karl og Carine hafa aldrei prýtt forsíðu saman áður og má því segja að þessi forsíða sé með þeim dýrustu sem gerð hefur verið.






×