Lífið

Dýfði sér í tjörnina og Verslingurinn nennti alls ekki í vinnuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur nú áfram á annarri keppnisviku. Harpa Rut Harðardóttir úr Kvennó og Birna María Másdóttir úr Verslunarskóla Íslands mættust í gær á sjöunda keppnisdegi. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan.

Harpa Rut fékk samnemanda sinn úr Kvenna til að henda sér í tjörnina og Birna var ekki beint á því að nenna í vinnuna en hún starfar hjá Dominos.

Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.

Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit.

Atkvæðagreiðsla fyrir sjötta keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Sigurgeir Andri Ágústsson úr FB og Fannar Freyr Ómarsson úr MS. Fannar Freyr hafði betur og mun halda áfram í næstu umferð.

Fannar Freyr komst áfram fyrir MS.
Fjölbrautarskóli Snæfellinga og Fjölbraut í Garðabæ mætast í dag, á áttunda keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á morgun.

Keppnin heldur áfram næstu vikurnar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála.

Að keppninni stendur sam­fé­lags­miðla­þátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.

Dagskrá keppninnar:

22. ágúst

Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)

23. ágúst

Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)

24. ágúst

Framhaldsskólinn á Húsavík (sigurvegari) vs. Tækniskólinn

25. ágúst

Menntaskólinn á Akureyri (sigurvegari) vs. Fjölbraut við Ármúla

26. ágúst

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi (sigurvegari)

29. ágúst

Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund (sigurvegari)

30. ágúst

Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands

31. ágúst

Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ

1. september

Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri

2. september

Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. Flensborgarskólinn

Sigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×