Lífið

Dwayne Johnson gerði hjartnæmt góðverk í Tonight show

Anton Egilsson skrifar
Leikarinn Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock, var gestur Jimmy Fallon í þættinum Tonight show í gærkvöldi. Falleg stund átti sér stað í þættinum þegar Johnson ákvað að koma einum framleiðanda þáttanna allverulega á óvart.

Johnson var þá búinn að leggja á ráðin um að fljúga eiginmanni framleiðandans heim en hann birtist henni að óvöru í þættinum. Eiginmaðurinn sem er hermaður hafði verið aðskilinn frá konu sinni í eitt og hálft ár en þau hjónin lifa í fimm þúsund mílna fjarlægð hvort frá öðru. Það var því einstaklega hjartnæm stund þegar þau hittust loks á nýjan leik.

Þetta fallega augnablik má sjá í myndbandi hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×