Golf

Dustin Johnson lék best allra á fyrsta hring á Whistling Straits

Kári Örn Hinriksson skrifar
Dustin Johnson og Jason Day voru í góðu skapi í dag.
Dustin Johnson og Jason Day voru í góðu skapi í dag. Getty

Þeir kylfingar sem fóru út snemma á fyrsta hring á PGA-meistaramótinu höfðu heppnina með sér en aðstæður á Whistling Straits vellinum voru mjög mismunandi í dag.

Völlurinn var mjúkur og lítill vindur fyrri partinn af deginum og það nýttu margir sér, meðal annars Dustin Johnson sem leiðir eftir fyrsta hring upp á 66 högg eða sex undir pari.

Margir aðrir sterkir kylfingar nýttu aðstæður vel og enduðu á 68 höggum eða fjórum undir pari en þar má helst nefna Jason Day og Matt Kuchar.

Tiger Woods nýtti sér þó ekki aðstæðurnar og lék á 75 eða þremur yfir pari en hann átti í miklum vandræðum með pútterinn.

Tveir bestu kylfingar heims, Jordan Spieth og Rory McIlroy hófu síðan leik eftir hádegi en þá hafði bætt mikið í vindinn og flatirnar orðnar harðar og erfiðar viðureignar.

Þeim tókst þó að halda sér í baráttunni en þeir léku báðir á 71 höggi eða einu undir pari.

Þá sýndi Svíinn David Lingmerth frábæra takta í vindinum seinni partinn og lék á 67 höggum eða fimm undir pari en hann er í öðru sæti á eftir Dustin Johnson.

Bein útsending á Golfstöðinni frá öðrum hring hefst klukkan 18:00 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×