Golf

Dustin Johnson enn efstur á St. Andrews - Lítið golf spilað í dag vegna veðurs

Dustin Johnson hefur leikið sér að St. Andrews hingað til.
Dustin Johnson hefur leikið sér að St. Andrews hingað til. Getty
Miklir vindar og úrhelli gerði það að verkum að lítið golf var spilað á St. Andrews í dag.

Leik var seinkað í morgun og fyrstu menn hófu ekki leik fyrr en eftir hádegi sem þýðir að Opna breska meistaramótið í ár klárast ekki fyrr en á mánudaginn en þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1988 sem það gerist.

Eftir 36 holur leiðir Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson á tíu höggum undir pari en hann hefur leikið hringina tvo á 65 og 69 höggum.

Englendingurinn Danny Willett kláraði í gær og spilaði ekkert golf í dag en hann kemur á eftir Dustin á níu höggum undir pari.

20 kylfingar eru á innan við fimm höggum frá efsta sætinu og því geta margir gert atlögu að titlinum á lokahringjunum en Jason Day, Jordan Spieth, Adam Scott og Louis Oosthuizen eru þar á meðal.

Tiger Woods náði ekki niðurskurðinum en hann endaði meðal neðstu manna á sjö yfir pari og þarf greinilega að vinna betur í leik sínum.

Stöðu keppenda má sjá hér en bein útsending frá þriðja hring hefst klukkan 09:00 í fyrramálið á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×