Golf

Dustin enn efstur eftir rigningardag á St. Andrews - Tiger nánast úr leik

Jason Day hefur leikið vel hingað til.
Jason Day hefur leikið vel hingað til. Getty.
Dustin Johnson leiðir enn á Opna breska meistaramótinu en hann er á tíu höggum undir pari eftir að hafa leikið 31 holur í mótinu.

Mikið vætuveður gerði á St. Andrews í morgun og því þurfti að seinka rástímum um þrjá klukkutíma en Dustin ásamt mörgum öðrum kylfingum eiga því eftir að klára annan hring og munu gera það í fyrramálið.

Englendingurinn Danny Willett er í öðru sæti á níu höggum undir pari en hann var einn af þeim sem náðu að klára leik í dag.

Jason Day og Paul Lawrie deila þriðja sætinu á átta höggum undir pari og á eftir þeim koma margir sterkir kylfingar á sjö og sex höggum undir, meðal annars Adam Scott og Luke Donald.

Tiger Woods náði ekki að klára leik í dag og þarf því að rífa sig upp í fyrramálið til þess að klára hringinn en hann mun örugglega ekki ná niðurskurðinum eftir að hafa spilað fyrstu 29 holurnar á fimm höggum yfir pari.

Þá spiluðu goðsagnirnar Nick Faldo og Tom Watson sína síðustu hringi á ferlinum á Opna breska meistaramótinu í dag og fengu þeir mjög mikinn stuðning frá áhorfendum en þeir munu ekki taka þátt í þessu sögufræga móti að ári liðnu.

Bein útsending frá þriðja degi hefst á Golfstöðinni klukkan 09:00 í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×