Körfubolti

Durant með tattú af Rick James á lærinu | Mynd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ætli þetta hafi verið góð hugmynd gæti Durant verið að hugsa.
Ætli þetta hafi verið góð hugmynd gæti Durant verið að hugsa. vísir/getty
Húðflúrsmenningin í íþróttaheiminum náði ákveðnum hápunkti þegar NBA-stjarnan Kevin Durant fékk sér tattú af Rick James á lærið.

Durant hefur verið að safna tattúum af sínum uppáhaldstónlistarmönnum á fæturna. Fyrr í sumar fékk hann sér húðflúr af Tupac og Wu Tang Clan.

Tattúið af Rick James kom skemmtilega á óvart og eins og sjá má hér að neðan er það alls ekki af minni gerðinni.

Nú er spurning hver ætli sér að toppa þetta ef það er yfir höfuð hægt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×