Lífið samstarf

Dúndurgott jólapartí

Sannkölluð hátíðarstemning sveif yfir vötnum í Gamla Bíói á fimmtudagskvöldið síðasta þegar haldinn var jólafögnuður Stella Artois. Margt var um manninn í þessu líflega jólapartíi sem var haldið í tilefni af útkomu 750 ml hátíðarútgáfu Stella Artois, sem verður til sölu fram á þrettándann líkt og aðrir jólabjórar.



Í raun var Stella Artois upphaflega bruggaður sem jólabjór en vinsældirnar voru slíkar að ákveðið var að hafa hann á boðstólum allt árið um kring.

Gestirnir í Gamla Bíói skemmtu sér konunglega enda skemmtunin frábær. Sólmundur Hólm stýrði veislunni en Bogomil Font og Flís komu fólki í sjóðandi stuð.

Á myndunum hér að ofan má sjá að gleðin var við völd meðal gesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×