Íslenski boltinn

Dúndurbyrjun ÍBV gerði útslagið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn ÍBV lyfta bikarnum.
Leikmenn ÍBV lyfta bikarnum. vísir/óskar pétur friðriksson
Eyjakonur urðu í dag Lengjubikarmeistarar í A-deild eftir 3-2 sigur á Breiðabliki í úrslitaleik á Hásteinsvelli.

ÍBV, sem endaði í 5. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra, lagði grunninn að sigrinum með frábærri byrjun en eftir 25 mínútur var staðan orðin 3-0, Eyjakonum í vil.

Clore Lacasse, Lisa-Marie Woods og Rebekah Bass skoruðu mörk ÍBV á þessum magnaða upphafskafla.

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir minnkaði muninn í 3-1 á 27. mínútu og hún skoraði svo sitt annað mark fimm mínútum fyrir leikslok. Nær komust Blikar ekki og Eyjakonur fögnuðu 3-2 sigri.

Pepsi-deild kvenna hefst með fjórum leikjum 11. maí. ÍBV fær þá Selfyssinga í heimsókn á meðan Blikar taka á móti KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×