Dujshebaev sá um pabba sinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2016 18:53 Talant Dujshebaev er þjálfari ungverska landsliðsins. Vísir/AFP
Spánn þurfti að hafa fyrir því að leggja Ungverjaland að velli í milliriðli 2 á EM í Póllandi í dag. Það tókst þó eftir spennandi lokamínútur, 31-29. Þar mættust feðgarnir Alex Dujshebaev, sem leikur með Spánverjum, og Talant Dujshebaev sem er þjálfari ungverska landsliðsins. Alex fór langt með að tryggja sigur Spánverja er hann kom þeim 30-28 yfir þegar rúm mínúta var til leiksloka. Tibor Gazdag minnkaði muninn úr vítakasti þegar 44 sekúndur voru eftir en Spánverjar gerðu vel í lokasókninni, fengu vítakast rétt áður en leiktíminn rann út og tryggðu sér tveggja marka sigur. Staðan var jöfn, 15-15, að loknum fyrri hálfleik en þrátt fyrir að Spánverjar hafi verið skrefi á undan í þeim síðari gekk þeim illa að hrista Ungverjana almennilega af sér. Valero Rivera skoraði fimm mörk fyrir Spán en markahæstur hjá Ungverjum var stórskyttan Laszlo Nagy með níu mörk. Roland Mikler átti fínan leik í marki Ungverja og varði þrettán skot. Sigurinn þýðir að Spánn er nú með 6 stig í milliriðli 2, rétt eins og Þýskaland og Danmörk. Danir mæta Svíum síðar í kvöld og geta með sigri tyllt sér í efsta sæti riðilsins. Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska landsliðið, sem hefur unnið alla leiki sína á mótinu, en Dagur Sigurðsson þjálfar þýska liðið.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Fleiri fréttir Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Sjá meira