Körfubolti

Dugði ekki til að skora 127 stig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Risaleikur Durant dugði ekki til fyrir Golden State.
Risaleikur Durant dugði ekki til fyrir Golden State. vísir/getty
Tólf leikja sigurganga Golden State endaði í gær þó svo liðið hefði skorað 127 stig í nótt.

Liðið tapaði þá gegn Houston í tvíframlengdum leik. Kevin Durant skoraði 39 stig og tók 13 fráköst fyrir Golden State í leiknum. Steph Curry skoraði 28 og Draymond Green skoraði 20.

James Harden var einu sinni sem oftar öflugastur í liði Houston með 29 stig, 15 fráköst og 13 stoðsendingar. Ryan Anderson einnig góður með 29 stig.

Meistarar Cleveland fengu á baukinn á heimavelli gegn Clippers og töpuðu með 19 stiga mun. Kyrie Irving með 28 stig fyrir Cleveland og LeBron James og Kevin Love með 16.

JJ Redick skoraði 23 stig fyrir Clippers og Chris Paul 16.

Úrslit:

Charlotte-Dallas  97-87

Brooklyn-Milwaukee  93-111

Memphis-Orlando  95-94

Cleveland-LA Clippers  94-113

Utah-Miami  110-111

Golden State-Houston  127-132

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×