Lífið

Drýgja tekjurnar með sölu varnings

Stefán Þór Hjartarson skrifar
GKR seldi plötuna sína í morgunkornskassa í Kjötborg.
GKR seldi plötuna sína í morgunkornskassa í Kjötborg. Vísir/Eyþór
Síðan Napster var aðal málið í kringum aldamótin hefur plötusala farið dvínandi og tónlistarmenn hafa þurft að finna sér aðrar leiðir til að afla sér tekna.

GKR hettupeysurnar hafa verið mjög vinsælar.Vísir/Eyþór
Tónleikahald, tónlistaveitur og sala á hverslags varningi hefur því orðið sífellt stærri hluti af framleiðslu tónlistarmanna og halda sumir þeirra beinlínis úti fatabúðum á netinu. Hér á landi hefur þetta verið sérstaklega áberandi í rappheiminum.

Morgunkorn og hettupeysur


Rapparinn GKR vakti athygli þegar hann gaf út sína fyrstu plötu en hann seldi hana á USB lykli pökkuðum í lítinn morgunkornskassa, en það er vísun í hans vinsælasta lag Morgunmatur. Einnig hefur hann verið að selja ansi vinsælar hettupeysur.

Það er karakter í Cyber stöffinu.
Með fatnað handa allri fjölskyldunni í vefversluninni

Emmsjé Gauti hefur verið einna öflugastur við sölu á varning. Hann heldur úti vefverslun þar sem er nánast hægt að sinna öllum innkaupum heimilisins. Hann hefur líka gefið út fatnað í samstarfi við 66° Norður, búið til tölvuleik til að kynna plötuútgáfu sína og selt action kall með skírskotun í He-man.

Tónlist og hönnun í eina sæng

Sturla Atlas og 101 boys hópurinn hafa verið mjög frumlegir í sinni nálgun og markaðssetningu. Strákarnir hafa gefið út mikið af fatnaði, farið í samstarf við 66° Norður og fyrst og fremst notað frumlegar leiðir í að markaðssetja sig þar sem þeir hafa meðal annars gert sérstakan ilm og hannað konsept af Sturla Aqua vatni.

Aldamóta-goth

Stelpurnar í Cyber eru líkt og kollegar sínir í Sturlu Atlas ávallt verið með öflugt „lúkk“ í kringum sig þar sem allt sem þær senda frá sér fellur inn í fagurfræðina. Henni má kannski lýsa sem „aldamóta gothi með dassi af normcore“ en kannski ekki. Þær hafa sent frá sér boli sem skera sig svolítið úr stílhreinni hönnun hinna rapparanna.

Strákarnir úr miðbænum eru alltaf með óborganlegar hugmyndir.
Emmsjé Gauti klæðist hér forlátu vesti sem hann gerði í samvinnu við 66° NorðurMynd/Maggi Leifs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×