Druslugangan haldin í annað sinn 24. maí 2012 14:00 María Lilja Þrastardóttir er einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem í ár gengur undir yfirskriftinni Meint-Drusluganga. Fréttablaðið/valli „
Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn í ár," segir María Lilja Þrastardóttir, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem haldin verður þann 23. júní næstkomandi. Yfirlýst markmið Druslugöngunnar er að færa ábyrgðina úr höndum þolenda kynferðisofbeldis yfir á gerendur og varpa ljósi á það hvernig samfélagið er tilbúið að leyfa brotamanni að njóta vafans á meðan raunveruleg fórnarlömb eru vænd um meiðyrði. Nokkrar breytingar eru á göngunni í ár sem gengur undir yfirskriftinni Meint-Drusluganga. „Við erum aðeins að breyta áherslunum í ár og viljum útrýma orðinu meint í orðræðunni um kynferðisafbrot. Við höfum til dæmis tekið eftir því að orðið „meint" er ekki notað þegar fjallað er um neina aðra brotaflokka," segir María Lilja en hugmyndin er að fá fjölmiðlafólk til að skrifa pistla í þágu göngunnar og birta í sínum miðli. „Við erum strax búin að fá viðbrögð frá fólki sem vill skrifa pistla fyrir okkur en með því getum við skapað umræðu í samfélaginu varðandi málefnið." Í fyrra mættu um 3.000 manns í gönguna sem verður með sama sniði í ár þar sem gengið verður frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíginn og endað á Ingólfstorgi þar sem ræðuhöld og tónlistaratriði verða á boðstólum. María Lilja segir skipulagninguna ganga vel en öll fjárframlög eru vel þegin. Nánari upplýsingar varðandi Druslugönguna er hægt að nálgast á Facebooksíðu þeirra og þeim sem hafa áhuga á að skrifa pistla er bent á póstfangið meintdrusluganga@gmail.com. - áp
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira