Lífið

Drullaðu þér vestur: #myrarbolti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mýrarboltamótið er mjög vinsælt.
Mýrarboltamótið er mjög vinsælt. vísir/vilhelm
Mýrarboltamótið verður haldið í tólfta sinn um helgina í Tunguskógi í Skutulsfirði.

Mótið hefst á föstudagskvöld og á laugardagsmorgun hefst spilamennskan. Á fyrri leikdegi verður leikið í riðlum en á sunnudag hefst útslátturinn.

Samfélagsmiðlarnir eru farnir að spila stór hlutverk í skemmtanalífi fólks og ætlar Lífið að fylgjast með á öllum vígstöðum fyrir vestan.

Hér að neðan má sjá myndir frá Instagram og tíst frá Twitter. Kassamerkið #myrarbolti er málið þessa helgina og skorar Vísir á lesendur að vera með. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×