Tíska og hönnun

Drottning köflótta munstursins heiðruð

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Vivienne Westwood
Vivienne Westwood Vísir/Getty
„Þessi verðlaun eru tileinkuð tveimur mönnum sem báðir hafa verið meðhönnuðir mínir. Malcom McLaren, maðurinn sem elskaði köflótt og kenndi mér að elska það.

Og svo eiginmaður minn, Andreas, sem er stórkostlegur maður og sá sem hannaði McAndreas köflótta munstrið okkar“ sagði fatahönnuðurinn Vivienne Westwood þegar hún tók við heiðursverðlaunum á Scottish Fashion Awards í gærkvöldi.

Verðlaunin hlaut hún fyrir að hafa haldið heiðri Skorska köflótta munstursins á lofti, en köflótt munstur hefur ávallt verið áberandi í hönnun Westwood.

Christopher KaneVísir/Getty
Fatahönnuðurinn Christopher Kane hlaut verðlaunin hönnuður ársins, en árið 2006 var hann valinn Young Designer of the Year á sömu verðlaunahátíð.

Kane hefur komið víða við á ferlinum og meðal annars hannað búninga fyrir tónlistarkonuna Kylie Minogue, gert línu fyrir bresku keðjuna Topshop og unnið með skóhönnuðinum Manolo Blahnik.

Scottish Fashion Awards voru haldin hátíðleg í London í gærkvöldi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×