Enski boltinn

Drogba snýr aftur til Chelsea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Didier Drogba snýr aftur til Chelsea.
Didier Drogba snýr aftur til Chelsea. Mynd/Twitter-síða Chelsea.
Chelsea staðfesti í dag að Didier Drogba hefði skrifað undir eins árs samning við félagið. Drogba snýr því aftur á Brúnna eftir tveggja ára fjarveru.

Drogba sem er 36 árs gamall hefur leikið með Shanghai Shenhua í Kína og Galatasaray undanfarin tvö ár eftir að hafa tryggt Chelsea sigur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2012 með síðustu spyrnunni í vítaspyrnukeppninni.

Drogba er gríðarlega vinsæll hjá stuðningsmönnum Chelsea hann lék áður fyrr með félaginu í átta ár og skoraði hann á þeim tíma 157 mörk í 341 leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×