Fótbolti

Drogba og Terry búnir að skora fyrir Chelsea - sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Didier Drogba fagnar marki sínu.
Didier Drogba fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Gömlu brýnin Didier Drogba og John Terry eru báðir búnir að skora fyrir Chelsea á móti slóvenska liðinu Mariborg en liðin mætast nú í 3. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á Stamford Bridge.

Mark Didier Drogba var hans fyrsta í Meistaradeildinni síðan að hann skoraði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar vorið 2012. Drogba skoraði markið sitt úr vítaspyrnu eftir að hafa komið inná sem varamaður fyrir Loic Rémy sem meiddist.

Drogba skoraði á 23. mínútu og John Terry kom Chelsea síðan í 3-0 á 31. mínútu eftir laglega stungusendingu frá Cesc Fàbregas.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá bæði þessi mörk sem og fyrsta mark Chelsea í leiknum sem Loic Rémy skoraði strax á 13. mínútu.

1-0 fyrir Chelsea 2-0 fyrir Chelsea 3-0 fyrir Chelsea



Fleiri fréttir

Sjá meira


×