Enski boltinn

Drinkwater missir bara af næsta leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Danny Drinkwater var úrskurðaður í aðeins eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik Leicester gegn Manchester United um helgina.

Drinkwater brást illa við spjaldinu og var jafnvel talið að hann fengi sömu örlög og liðsfélagi hans, Jamie Vardy, sem fékk aukaleik í bann fyrir ofsafengin viðbrögð fyrir rauðu spjaldi.

Sjá einnig: Leicester getur orðið enskur meistari á Old Trafford en Vardy verður ekki með

En Drinkwater fékk aðeins eins leiks bann og missir því aðeins af leik Leicester gegn Everton um næstu helgi. Vardy kemur aftur inn í lið Leicester eftir að hafa tekið út sitt tveggja leikja bann.

Drinkwater var rekinn af velli á 86. mínútu í leiknum um helgina fyrir að toga Memphis Depay niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×