Bílar

Driftað kringum bíl á tveimur hjólum

Finnur Thorlacius skrifar
Í flestu er hægt að slá nýtt heimsmet. Það gerðu tveir kínverskir ökumenn á ökuleiknisýningu í Kína um daginn er annar driftaði kringum hinn, sem ók bíl aðeins á tveimur hjólum.

Aldrei hefur áður verið driftað jafn marga hringi kringum annan bíl á ferð, eða 10 sinnum. Til þessa notuðu þeir BMW M4 Coupe í driftið og Mini Cooper til akstursins á tveimur hjólum.

Hefur met þeirra kumpána verið viðurkennt af Guinness Book of Records. Ekki þarf að efast um ökuhæfni beggja ökumannana, en hálf súrrealískt er að sjá aðfarir þeirra. Sem fyrr er sjón sögu ríkari. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×