Innlent

Draumurinn um hálendisþjóðgarð falli nokkuð nálægt nýjustu drögum að rammaáætlun

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason vísir/stefán
Eitt af þeim þremur málum sem Andri Snær Magnason, forsetaframbjóðandi, hyggst leggja áherslu á nái hann kjöri er stofnun þjóðgarðs á hálendinu. Fyrir liggja nú drög verkefnisstjórnar rammaáætlunar um tillögur að því hvaða virkjunarkosti beri að nýta, hvaða kosti eigi að setja í biðflokk og hvaða kosti beri að vernda.

Í nýjustu tillögum verkefnastjórnarinnar er Skrokkalda sett í nýtingarflokk en hún fellur innnan þess svæðis sem þjóðgarður á hálendinu myndi ná til.

Rammaáætlun er ekki afgreidd frá Alþingi sem lög heldur sem þingsályktun og því kemur ekki til kasta forseta Íslands þegar kemur að afgreiðslu rammaáætlunar. Hann getur því ekki haft bein áhrif á rammann en að sögn Stefáns Gíslasonar, formanns verkefnisstjórnar rammaáætlunar, getur hann auðvitað sent inn umsögn um áætlunina eins og hver annar.

Aðspurður hvernig Andri Snær vilji því beita sér fyrir þjóðgarði á hálendinu nú þegar drög að nýrri rammaáætlun liggja fyrir sem forsetinn getur haft lítil sem engin áhrif á segir hann:

„Ég held að öllum sé ljóst að forsetinn er ekki löggjafarvald og hann hefur ekki beina aðkomu að þáttum í ákvörðunarferlinu en hann hefur mikil áhrif á það að koma málum á dagskrá, hann getur leitt saman hópa og fólk auk þess sem hann hefur góðan aðgang að ráðamönnum. Það vill reyndar svo til draumurinn um þjóðgarð fellur nokkuð nálægt nýjustu drögum að rammaáætlun. Rammaáætlun forgangsraðar virkjunarkostum en segir ekki til um hvenær eða hvort verði endanlega virkjað,“ segir Andri Snær.

Hann segir málið snúast um ákveðna forgangsröðun og það hlutverk forsetans að setja mál á dagskrá í samfélaginu og á alþjóðavísu. Andri Snær nefnir ráðstefnuna Arctic Circle sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti , hefur staðið fyrir þar sem fókusinn er á málefni Norðurslóða.

„Ég er ekki að tala um að reyna að þvinga mínum hugmyndum upp á fólk heldur tel ég einfaldlega mjög mikilvægt að við finnum sýn þar sem hlutir geti orðið að veruleika,“ segir Andri Snær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×