Körfubolti

Draumurinn kann þetta ennþá | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hakeem sýndi að hann hefur engu gleymt.
Hakeem sýndi að hann hefur engu gleymt. vísir/afp
Fyrsti NBA-leikurinn í Afríku fór fram í dag þegar heimsliðið vann úrvalslið Afríku, 101-97, í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.

Í úrvalsliði Afríku, sem var skipað Afríkumönnum eða leikmönnum af afrískum ættum, voru leikmenn á borð við Loul Deng, Nicolas Batum og Boris Diaw, auk þess sem gömlu hetjurnar Dikembe Mutombo og Hakeem Olajuwon stigu á stokk.

Hinn 52 ára gamli Hakeem sýndi að hann hefur engu gleymt en mikil fagnaðarlæti brutust út þegar hann setti niður stökkskot í 2. leikhluta eftir eina eina af sínum frægu gabbhreyfingum. Körfuna má sjá í myndbandinu hér að neðan.

„Þetta var eftirminnileg reynsla,“ sagði Chris Paul, leikstjórnandi Los Angeles Clippers, sem var fyrirliði heimsliðsins sem innihélt m.a. Bradley Beal, Kenneth Farid, Nikola Vucevic og spænsku bræðurna Pau og Marc Gasol.

„Ég sagði við Drauminn (viðurnefni Hakeems) að ég gæti ekki ímyndað hvernig hann hefði verið þegar hann var upp á sitt besta, miðað við hvernig hann hreyfir sig í dag.“

Beal var stigahæstur í heimsliðinu með 18 stig, en Lionel Hollins, þjálfari Brooklyn Nets, stýrði því.

Giannis Antetokounmpo, leikmaður Milwaukee Bucks, skoraði 22 stig fyrir Afríkuliðið sem Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, stýrði.

Loul Deng, leikmaður Miami Heat, segir að viðburður sem þessi sé mikilvægur fyrir útbreiðslu körfuboltans.

„Þegar ég var krakki átti ég aldrei möguleika á að sjá NBA-leiki og hvað þá að hitta stjörnurnar. Ég get ekki lýst því hvernig það er að koma aftur til Afríku og taka þátt í svona leik,“ sagði Deng sem fæddist í Suður-Súdan.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×