Draumur um að halda afmæli dugar alveg fullt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. ágúst 2014 11:00 „Nú er ég bara ein af þeim kerlingum sem stinga höfðinu í sandinn og er ekkert leið fyrir því að vera orðin sextug,“ segir Þórunn oglætur fara vel um sig í hengirúmi í garðinum. fréttablaðið/gva
Þegar tekist hefur að telja Þórunni á að vera í viðtali vegna sextugsafmælisins í dag er eftir að ræða myndamálin. „Æ, það er nú alltaf erfiðast,“ stynur hún. „Það er til hryllilega mikið af ónothæfum myndum af mér úti um allan bæ. En mér er svosem alveg sama – þó mér sé ekki sama – þú veist hvað maður er settur saman úr mörgum sýslum!“ Í framhaldi af því er hún beðin að segja frá einhverjum „sýslum“ sem hún býr yfir. „Ég var sko búin að frétta frá Danmörku að það væri voða flott að vera sextug kona,“ byrjar hún. „Það væri alveg nýtt, enda entust kerlingar orðið svo vel, væru úti um allt á listviðburðum og vissu allt best – nánast óþolandi! Ég hef tekið eftir að íslenskar konur fela sig oft á sextugsafmælum og fara í ferðalag – nema Hlín Agnars, hún bauð upp á leikhúsviðburð í Tjarnarbíói. Mér fannst það hetjulegt og datt í hug að gera eitthvað slíkt sjálf. En ég er búin að vera úti í Mexíkó í sumar og fór líka til Texas. Ég var heilt ár við nám í Mexíkó þegar ég var 23 ára og var komin með heimþrá í annan heimshluta. Svo fékk ég geðveikt samviskubit. Ef maður á pening á maður auðvitað að gefa hann til góðs málefnis en ekki splæsa honum í flugmiða fyrir sjálfan sig. Ein sýslan mín var ekki ánægð með þetta. Yfirleitt held ég að flestir séu eins og ég, að áður en að stórafmælum kemur hugsi þeir: Hvernig í dauðanum á ég að leysa þetta? Þegar ég varð fimmtug bauð ég gestum í rútu á Þingvöll. Lilja systir hélt úti „kventett“ þá, blásturshljómsveit með fimm konum, sem byrjaði að spila í Almannagjá þegar ég og gestir mínir gengum þar niður. Ég var búin að fá lánaðan pípuhatt og setti blómakrans sem mér var gefinná höfuð Hjördísar Hákonardóttur, fyrsta kvensýslumanns landsins. Við leiddumst niður Almannagjá og ég sagði undrandi túristum að við hefðum verið að gifta okkur og þeir urðu enn meira undrandi því þetta var áður en giftingar samkynhneigðra voru lögleiddar. Svo píndi ég alla til að ganga gjárnar, áður en við stoppuðum til að taka upp kampavín og heimabakað brauð og ost, það var ekkert sérlega fallegt gagnvart Thor Vilhjálmssyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur sem bæði voru eitthvað ófrísk í fótum þá, þannig að úr þessu varð smá samviskubit í einni sýslunni.“ En þarna varð svona náttúruvíma og nú þurfti ég að toppa þetta á sextugsafmælinu. Var búin að panta Kramhúsið á sunnudaginn og ætlaði að fá fólk til að dansa við mig en svo fór ég að átta mig á að ein vinkonan frá Akureyri og tengdamamma þyrftu að sitja allan tímann og þetta var allt að verða svo flókið að ég hætti við. En maður lifir alveg 75% í draumi þannig að draumur um að halda afmæli dugar alveg fullt. Svo nú er ég bara ein af þeim kerlingum sem stinga höfðinu í sandinn og er ekkert leið yfir því að vera orðin sextug heldur vonast til að eiga gleðilega rest.“
Menning Mest lesið „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Lífið Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Margrét Ýr og Reynir nýtt par Lífið Samantha Davis er látin Lífið Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Lífið Filmuvél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Magnea fór upp á fjall á tryllitæki Lífið Fleiri fréttir Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein „Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“ Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Eliza hlaut heiðursverðlaun Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna Kaflaskil í íslenskri menningarsögu Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun „Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir Íslensk strandmenning í brennidepli á Akranesi Þrífst vel í brjálaðri vinnumenningu í New York Samtal við mömmu sem olli straumhvörfum Sjá meira