Bíó og sjónvarp

Draugabanar nálgast

Frumsýningardagur nýju Ghostbusters-myndarinnar vestanhafs verður 22. júlí á næsta ári.

Einnig hefur verið tilkynnt að konur verði í aðalhlutverkunum, eða þær Kristen Wiig, Melissa McCarthy, Kate McKinnon og Leslie Jones. Leikstjóri og handritshöfundur verður Paul Feig, maðurinn á bak við Bridesmaids.

Ivan Reitman framleiðir en hann leikstýrði Ghostbusters-myndunum tveimur sem komu út á níunda áratugnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×