Erlent

Drap börn sín eftir rifrildi við konuna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hús fjölskyldunnar á Flórída.
Hús fjölskyldunnar á Flórída.
52 ára gamall þriggja barna faðir í bænum Port Orange á Flórída skaut þrjú börn sín, þar af dóu tvö, áður en hann tók eigið líf á föstudagsmorgun. Maðurinn hafði rifist við konu sína samkvæmt upplýsingum lögreglu. Reuters greinir frá.

David Mohney skaut úr skammbyssu sinni eftir að eiginkona hans hafði flúið til nágranna í leit að hjálp. Þá hafði Mohney hótað eiginkonunni með byssu á meðan á rifrildinu stóð.

Ellefu ára gamall drengur og fjórtán ára stúlka fundust látin á vettvangi ásamt föðurnum. Þriðja barnið, níu ára stelpa, liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Arnold Palmer spítalans í Orlando.

„Hann verður að eiga það við sig ef hann vill fremja sjálfsmorð. En að skjóta börnin sín, það ber vott um aumingjaskap,“ sagði lögreglustjórinn Ben Johnson á blaðamannafundi. Fram kom að heimilisofbeldi hefði verið vandamál á heimilinu af hálfu eiginkonu Mohney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×