Handbolti

Dramatískir sigrar hjá Selfossi og FH

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Finnur Ingi Stefánsson átti stórleik en fór illa að ráði sínu undir lokin.
Finnur Ingi Stefánsson átti stórleik en fór illa að ráði sínu undir lokin. vísir/vilhelm
Selfoss og FH unnu sína leiki í kvöld með nákvæmlega sömu markatölu, 29-28.

Selfoss lagði Gróttu þar sem Grótta hefði getað jafnað í lokin en vítakast Finns Inga Stefánssonar fór í þverslána.

Finnur Ingi skoraði annars tólf mörk í leiknum. Einar Sverrisson var markahæstur hjá Selfossi með átta mörk.

Það var líka mikil spenna í leik FH og Fram þar sem Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði síðasta mark leiksins fyrir FH.

Hann var líka markahæstur þeirra með sjö mörk í kvöld. Þorgeir Davíðsson skoraði sex fyrir Fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×