Lífið

Dramatíkin allsráðandi þegar Bríet Ísis hafði betur gegn Hönnu og Nikita

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bríet Ísis var eðlilega í skýjunum þegar úrslitin voru ljós.
Bríet Ísis var eðlilega í skýjunum þegar úrslitin voru ljós. Vísir/Andri Marinó
Hún var heldur betur dramatísk stundin þar sem dómarar þurftu að velja á milli þess hvort dansparið Hanna og Nikita eða tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar kæmust í úrslitin.

Bubbi Morthens og Selma Björnsdóttir gáfu Bríeti atkvæði sitt en Selma Björnsdóttir kaus Hönnu og Nikita. Fór því svo að atkvæði Jóns Jónssonar réð úrslitum. Eftir langa umhugsun kaus Jón þau Hönnu og Nikitu. Var því jafnt, 2-2 í atkvæðum, og líta þurfti til niðurstöðu úr símakosningu.

Í ljós kom að Bríet Ísis hafði fengið fleiri atkvæði í kosningunni og því komin í úrslit Ísland got Talent sem fram fara 12. apríl. Atriði Bríetar má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×