Sport

Dramatíkin algjör í Super Bowl: Istanbúl ameríska fótboltans

Hörður Magnússon skrifar
Tom Brady leiddi sögulega endurkomu New England Patriots í nótt þegar liðið tryggði sér NFL-titilinn með 34-28 sigri á Atlanta Falcons í Super Bowl í Houston. Aldrei hefur lið kom til baka eftir að hafa lent svona mikið undir og í fyrsta sinn réðust úrslitin í Super Bowl í framlengingu.

Sérfræðingar vestanhafs hölluðust fyrir leikinn frekar að sigri Patriots enda Atlanta með eitt yngsta lið deildarinnar og aðeins einu sinni í sögunni komist í superbowl. Eftir stigalausan fyrsta leikhluta fór Atlanta sóknin í gang svo um munaði með leikstjórnandann Matt Ryan fumlausan.

Devonta Freeman skoraði fyrsta snertimarkið og skömmu síðar var staðan orðin 14-0 þegar Ryan kastaði á Austin Hooper. Patriots virtist ekki eiga nein svör gegn besta sóknarliði deildarinnar. Tom Brady fékk engann tíma í vasanum. Settur hvað eftir annað undir mikla pressu og hann kastaði boltanum í hendurnar á Robert Alfred sem hljóp 82 jarda með boltann í markið.

Hreint með ólíkindum þrjú snertimörk í öðrum leikhluta og Patriots lendir undir 21-0. Þeir skoruðu vallarmark rétt fyrir hálfleik og staðan 21-3. Þá tók við hálfleikssýningin með Lady Gaga.

Þegar hún hafði lokið sér af með glæsibrag hófst þriðji leikhluti. Allt var á sömu bókina lært. Atlanta miklu betri og Patriots heillum horfnir. Tevin Coleman kom þeim í 28-3 og margir fóru hreinlega að sofa allavega hér á Íslandi. Þá hófst ótrúlegasta endurkoma í sögu NFL og ein sú magnaðasta í íþróttum.

Brady sendi á Jimmy White og hann lagaði stöðuna aukastig Patriots reyndar mistókst og staðan 28-9. Fjórði leikhlutinn var tryllingsleikur. Brady og Patriots menn voru vaknaðir svo um munaði. Danny Amendola skoraði snertimark 28-18. Þeir reyndu við tvö aukastig sem var eina sem þeir gátu gert og snilldarfléttan heppnaðist og allt í einu var staðan 28-20.

Brady fékk aftur boltann skömmu síðar og sending hans var varin en á ótrúlegan hátt tókst Julian Edelman að grípa boltann. Tómas Þór. Þetta var olían á eldinn og James White hljóp í mark skömmu síðar 28-26 og innan við mínúta eftir. Þá var komið að reyna aftur við aukastigin til að jafna.

Nítján stig Patriots í fjórða leikhluta og í fyrsta skipti í sögu Superbowl var framlengt. Aldrei áður hafði liði tekist að vinna upp jafnmikinn mun. Patriots hafði heppnina með sér og vann hlutkestið og fengu að byrja með boltann. Tómas Þór Þórðarson aftur.

Lokatölur 34-28. Fimmti titill Tom Brady og þjálfarans Bill belichick með patriots í sjö úrslitaleikjum sem er met. Enginn leikstjórnandi í sögunni hefur unnið fimm titla. Annars féllu ýmis met í tengslum við þessa ótrúlegu endurkomu sem aldrei gleymist. Þetta var nokkurs konar Istanbúl Ameríska fótboltans.

Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að ofan.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×