Lífið

Dragkeppni Íslands verður haldin í 18. sinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi hópur tekur þátt í ár. Búast má við mikilli spennu annað kvöld.
Þessi hópur tekur þátt í ár. Búast má við mikilli spennu annað kvöld.
Hin árlega dragkeppni Íslands fer fram í Gamla bíó á morgun miðvikudaginn 5. ágúst en þetta er 18. keppnin sem haldin hefur verið í húsakynnum Gamla Bíós.

Þátttakendur eru alls átta í ár ásamt fjölda skemmtiatriða og kynnir kvöldsins er enginn annar er töframaðurinn Bjarni. Búast má stórskemmtilegri keppni í ár og eru atriðin mjög fjölbreytt.

Keppni hefst klukkan 21 en opnaðar verða hurðir átta og gestum boðið uppá fordrykk.

Hægt er að nálgast miða á keppnina með því að mæta niður í miðasölu Gamlabíó frá kl 18:00 miðvikudaginn 5. ágúst og einnig hægt að kaupa miða inná midi.is 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×