Lífið

Dóttirin stal senunni enn á ný

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Robert Kelly, Kim Jung-A og börnin þeirra tvö  Marion og James.
Robert Kelly, Kim Jung-A og börnin þeirra tvö Marion og James.
Robert E. Kelly, eiginkona hans Kim Jung-A og börn þeirra tvö eru heimsfræg eftir að viðtal Kelly við BBC fór út um allan heim þegar þegar börnin hans tvö komu inn í herbergið hjá honum og slógu í gegn.

Fjölskyldan hélt blaðamannafund á dögunum þar sem þau töluðu um hvernig líf þeirra hefur breyst frá því að myndbandið birtist. Enn á ný stal þó fjögurra ára dóttir þeirra senunni.

Hún var miðpunktur athyglinnar á fundinum þar sem henni virtist leiðast mjög þótt að sleikipinni hafi haldi henni uppteknum um tíma.

Notendur samfélagsmiðla voru fljótir að koma auga á þetta og skemmtu sér vel yfir frammistöðu Marion á blaðamannafundinum, líkt og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×