Lífið

Dóttirin með druslu-tattú

Dagur B. er mikill stuðningsmaður Druslugöngunnar.
Dagur B. er mikill stuðningsmaður Druslugöngunnar. vísir/arnþór
Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur lét sig ekki vanta á Druslugönguna sem fór fram seinasta laugardag. Borgarstjórinn mætti galvaskur ásamt fjölskyldu sinni en dóttir hans bar einmitt tyggjó-tattú á enninu sem var sérstaklega gert fyrir gönguna.

Ekki nóg með að Dagur hafi sjálfur mætt á gönguna heldur mátti einnig sjá glitta í ýmis skilti þar sem hann er nefndur á nafn. Það kemur ekki á óvart þar sem Dagur hefur verið mikill baráttumaður gegn kynferðislegu ofbeldi og mikill stuðningsmaður druslugöngunnar.

Á einu skilti þar sem minnst var á borgarstjórann stóð einfaldlega „Next time they call you a slut - Dagur B. tells you not to give a fuck!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×