Glamour

Dóttir Cindy Crawford landar sínum fyrsta sóló forsíðuþætti

Ritstjórn skrifar
Kaia Gerber, dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford, prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs POP Magazine. Þetta er í fyrsta skiptið sem að Kaia er ein á forsíðu tímarits en hún er hægt og rólega að stíga sín fyrstu skref í tískubransanum. 

Ekki nóg með að hún sé á forsíðunni heldur eru gefnar út þrjár mismunandi tegundir af forsíðum svo að lesendur geta valið sína uppáhalds. 

Kaia er aðeins 14 ára gömul svo að hún hefur meðal annars verið á forsíðu franska Vogue ásamt mömmu sinni og verið í Young Versace herferð. Það er greinilegt að Kaia eigi framtíðina fyrir sér í fyrirsætubransanum en það verður spennandi að fylgjast með henni feta í fótspor móður sinnar. 






×