Fótbolti

Dortmund vann stórleikinn gegn RB Leipzig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði fínt mark í kvöld.
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði fínt mark í kvöld. vísir/getty
Borussia Dortmund vann RB Leipzig, 1-0, í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu og minnkaði liðið muninn sem RB Leipzig hefur á Dortmund niður átta stig.

Bayern Munchen er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 46 stig, fjórum stigum á undan Leipzig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×