Fótbolti

Dortmund tryggði sæti sitt í Meistaradeildinni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leikmenn Dortmund fagna marki í dag
Leikmenn Dortmund fagna marki í dag Vísir/Getty
Dortmund vann góðan sigur á Mainz á Signal Iduna Park í Dortmund í dag. Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Dortmund, stýrði Mainz áður en hann tók við taumunum hjá Dortmund.

Með sigrinum tryggði Dortmund sæti sitt í Meistaradeildinni á næsta tímabili þegar þrjár umferðir eru eftir. Robert Lewandowski, Lukasz Piszczek, Milos Jojic og Marco Reus voru á skotskónum í liði Dortmund.

Bayern Munchen vann nauman sigur á botnliði Braunschweig þrátt fyrir að hvíla nokkra af lykilleikmönnum sínum. Claudio Pizarro skoraði fyrsta mark Bayern þegar korter var til leiksloka áður en Mario Mandžukić gerði út um leikinn tíu mínútum síðar.

HSV Hamburg tekur á móti Wolfsburg í lokaleik dagsins á heimavelli. Hamburg er í harðri fallbaráttu þegar skammt er eftir af tímabilinu og geta skotist úr fallsæti með sigri í dag.

Úrslit dagsins:

Ausburg 0-0 Hertha Berlin

Braunschweig 0-2 Bayern Munchen

Dortmund 4-2 Mainz

Freiburg 4-2 Borussia Moenchengladbach

Werder Bremen 3-1 Hoffenheim






Fleiri fréttir

Sjá meira


×