Fótbolti

Dortmund tapaði í Mainz

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Mainz fagna marki.
Leikmenn Mainz fagna marki.
Dortmund tapaði óvænt fyrir Mainz 05 á útivelli í dag, en leikurinn var annar leikurinn sem Dortmund tapar á tímabilinu.

Shinji Okazaki kom Mainz yfir eftir 67. mínútur, en þremur mínútum síðar klikkaði Ciro Immobile víti fyrir gulklædda gestina.

Matthias Ginter skoraði svo sjálfsmark og tryggði Mainz sigur.

Með sigrinum fer Mainz á toppinn ásamt Paderborn, en er með lakari markatölu. Dortmund er einungis með sex stiga eftir fjóra leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×