Fótbolti

Dortmund spyrnti sér af botninum

Jurgen Klopp, þjálfari Dortmund, fagnar hér sigurmarki leiksins. Eins og sjá má var mikið lagt í fagnið.
Jurgen Klopp, þjálfari Dortmund, fagnar hér sigurmarki leiksins. Eins og sjá má var mikið lagt í fagnið. vísir/afp
Dortmund vann sjaldséðan sigur í þýska boltanum í kvöld og komst um leið upp úr botnsæti deildarinnar.

Það sem meira er þá komst Dotmund upp úr fallsæti með þessum þrem stigum sem liðið fékk fyrir 1-0 sigur á Hoffenheim.

Það var Ilkay Gundogan sem skoraði markið mikilvæga í kvöld.

Þungu fargi var augljóslega létt af bæði leikmönnum og þjálfara liðsins. Menn hafa sjaldan séð Jurgen Klopp, þjálfara Dortmund, fagna af álíka innlifun og í kvöld.

Eftir erfiðar vikur er þetta eitthvað til að fagna hjá félaginu og spurning hvort liðið geti byggt ofan á þennan sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×