Fótbolti

Dortmund náði Bayern að stigum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Það er alltaf stemning á Signal Iduna Park í Dortmund
Það er alltaf stemning á Signal Iduna Park í Dortmund vísir/getty
Borussia Dortmund lagði Freiburg 3-1 á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Dortmund var 1-0 yfir í hálfleik.

Pierre-Emerick Aubameyang kom Dortmund yfir rétt fyrir hálfleik og Lukasz Piszczek kom liðinu í 2-0 á áttundu mínútu seinni hálfleiks.

Þegar hálftími var til leiksloka minnkaði Maximilian Philipp muninn fyrir Freiburg. Gestirnir voru aldrei nálægt því að jafna metin og gulltryggði Raphael Guerreiro Dortmund sigurinn á fyrstu mínútu uppbótartíma.

Dortmund er með 12 stig í efsta sæti deildarinnar líkt og Bayern Munchen en FC Bayern á leik til góða um helgina. Freiburg er um miðja deildina með sex stig í fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×