Fótbolti

Dortmund með fleiri stig í Meistaradeildinni en þýsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp þjálfari Borussia Dortmund með leikmanninum Pierre-Emerick Aubameyang.
Jürgen Klopp þjálfari Borussia Dortmund með leikmanninum Pierre-Emerick Aubameyang. Vísir/Getty
Borussia Dortmund er í slæmum málum í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið hefur aðeins náð í ellefu stig í fyrstu þrettán leikjum tímabilsins og situr fyrir vikið í botnsæti deildarinnar.

Á sama tíma hefur Borussia Dortmund gengið vel í Meistaradeildinni þar sem liðið hefur þegar tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum.

Dortmund vann fjóra fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni en tapaði reyndar síðasta leik sínum á móti Arsenal. Dortmund var eitt fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.  

Borussia Dortmund er því með tólf stig í fimm leikjum í Meistaradeildinni á leiktíðinni eða stigi meira en liðið hefur náð að safna í átta fleiri leikjum í deildinni heima fyrir.

Borussia Dortmund vann tvo af fyrstu þremur deildarleikjum sínum en hefur síðan aðeins unnið einn leik og náð í fimm stig af 30 mögulegum.

Síðan liðið spilaði fyrsta leikinn sinn í Meistaradeildinni 16. september hefur Dortmund aðeins unnið einn af leik af tíu í þýsku deildinni og bara náð að skora átta mörk.

Fjórir af fimm síðustu sigurleikjum Dortmund-liðsins og 13 af 21 marki liðsins frá 15. september hafa því komið í Meistaradeildinni.  



Borussia Dortmund í þýsku deildinni 2014-15:

13 leikir

3 sigrar, 2 jafntefli, 8 töp

Markatalan: -7 (14-21)

11 stig

Borussia Dortmund í Meistaradeildinni 2014-15:

5 leikir

4 sigrar, 0 jafntefli, 1 tap

Markatalan: +10 (13-3)

12 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×