Fótbolti

Dortmund marði 10 leikmenn Werder Bremen

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mikilvægur sigur hjá Dortmund.
Mikilvægur sigur hjá Dortmund. vísir/getty
Borussia Dortmund lagði Werder Bremen 2-1 í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta á í dag á útivelli.

Andre Schürrle kom Dortmund yfir strax á 5. mínútu og var það eina mark fyrri hálfleiks.

Jaroslav Drobný markvörður Bremen fékk að líta rauða spjaldið þegar sex mínútur voru til hálfleiks en engu að síður náði Bremen að jafna á 59. mínútu. Fin Bartels þar að verki.

Lukasz Piszczek tryggði Dortmund sigurinn þegar 19 mínútur voru til leiksloka. Mikilvægt mark í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Önnur úrslit dagsins í Þýskalandi:

Schalke 04 - Ingolstadt 1-0

Wolfsburg - Hamburger SV 1-0

Augsburg - Hoffenheim 0-2

Darmstadt 98 - Borussia M'gladbach 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×