Fótbolti

Dortmund krefst 40 milljóna fyrir Reus

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Marco Reus skorar framhjá Maruis Gersbeck
Marco Reus skorar framhjá Maruis Gersbeck Mynd/Gettyimages
Dortmund hefur varað lið við að ef eitthvert þeirra ætli sér að kaupa Marco Reus, leikmann Dortmund og þýska landsliðsins þurfi sama lið að greiða 40 milljónir evra.

Reus var áður með ákvæði í samningnum að Dortmund gæti ekki neitað 29,4 milljóna tilboði í Reus en það var hækkað í nýjum samningi eftir kaup Bayern Munchen á Mario Götze í sumar.

Hinn 24 ára gamli Reus hefur verið orðaður við Manchester United sem neyðist til að slá félagsmets upphæðina ætli þeir sér að fá Reus. Talið er að miðjumaður sé efstur á óskalista David Moyes en hann vilji styrkja liðið á fleiri sviðum ef mögulegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×