Enski boltinn

Dortmund fór illa með Man Utd | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manchester United steinlá, 4-1, fyrir Borussia Dortmund á International Champions Cup í dag. Leikið var í Shanghai í Kína.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

Dortmund-menn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og komust yfir á 20. mínútu þegar Gonzalo Castro skoraði eftir Sam Johnstone missti aukaspyrnu Pierre-Emerick Aubameyang frá sér.

Aubameyang skoraði svo úr vítaspyrnu á 36. mínútu og staðan 2-0 í hálfleik.

Franska ungstirnið Ousmane Dembele kom þýska liðinu í 3-0 á 57. mínútu eftir að hafa sólað Marcos Rojo upp úr skónum.

Henrikh Mkhitaryan minnkaði í 3-1 tveimur mínútum síðar þegar hann skoraði gegn sínum gömlu félögum. Armeninn gekk til liðs við United frá Dortmund fyrr í sumar.

Þetta var reyndist þó bara sárabótarmark og Castro gulltryggði sigur Dortmund þegar hann skoraði fjórða mark liðsins á 86. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×