Innlent

Dorrit Moussaieff með heimilisfesti í Ísrael

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Dorrit hefur hingað til ekki viljað tjá sig um störf sín í London og aðkomu sína að rekstri fjölskyldurfærirtækis Moussaieff fjölskyldunnar.
Dorrit hefur hingað til ekki viljað tjá sig um störf sín í London og aðkomu sína að rekstri fjölskyldurfærirtækis Moussaieff fjölskyldunnar. Vísir/Valgarð
Örnólfur Thorsson forsetaritari ítrekar að Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, sé skráð með fasta búsetu í Bretlandi og greiði þar skatta í kjölfar frétta um tengsl hennar við aflands­félög. 

Dorrit er með þrefalt ríkisfang, íslenskt, breskt og ísraelskt. Heimilisfesti hennar er í fæðingarlandi hennar, Ísrael.

Í umfjöllun Reykjavik Media, The Guardian og Süddeutsche Zeitung kemur fram að samkvæmt gögnum frá 2006-2007 sé forsetafrúin ein af þremur meðlimum Moussaief fjölskyldunnar sem sameiginlega áttu fyrirtæki á Bresku Jómfrúar­eyjum, Jaywick Properties Inc.  Þá kemur fram í umfjöllun The Guardian að Dorrit sé ekki með skattalega heimilisfesti í Bretlandi. Í umfjöllun The Guardian kemur fram að slík skráning (non domiciled) beri með sér takmarkaða skattskyldu.

Hugtakið „non-domiciled resident“ er sérregla í breskum skattareglum og afar umdeild. Samkvæmt reglunni geta aðilar verið heimilisfastir í Bretlandi og greiða aðeins skatta af tekjum sem eiga uppruna sinn í Bretlandi og þeim sem eru færðar inn í landið. Á Íslandi eru þeir sem eiga hér heimili tekjuskattsskyldir af öllum tekjum, hvaðanæva úr heiminum. Þau Ólafur Ragnar eru skráð sem „hjón ekki í samvistum“ í Þjóðskrá síðan árið 2012. Árið 2013 sendi Dorrit frá sér yfirlýsingu um að hún hefði gert ráðstafanir að ráðleggingum lögfræðinga sinna til að geta sinnt störfum í London við fjölskyldufyrirtækið.

Dorrit hefur ekki viljað tjá sig frekar um þessi málefni og segir þau einkamál. Fréttastofa 365 hefur þrátt fyrir það beðið um svör við því hver aðkoma hennar er að stjórn og rekstri þeirra aflandsfélaga sem hún er sögð eiga hlut í.

Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 4.maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×