„Sennilega best að vera ekki að grínast mikið á kjörstað!" skrifar Dorrit Moussaieff á Facebook-síðu sína en þar vitnar hún í frétt Vísis í morgun þar sem sagt er frá því að Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit kusu.
Dorrit grínaðist með það á kjörstað að hún væri ekki búin að gera upp hug sinn varðandi frambjóðendur og ætlaði því að eyða töluverðum tíma í kjörklefanum til þess að finna þann frambjóðanda sem hugnaðist henni best.
Dorrit lýsir því að allir starfsmennirnir á kjörstað hafi verið brosandi og í léttu skapi, sem og fjölmiðlafólkið. „Svo sé ég að góðlátlegt grín sem ég sagði hlæjandi er orðið að frétt á vísi.is um að ég hafi farið óákveðin inn í kjörklefann!" skrifar hún svo.
Því má leiða líkur að því, þrátt fyrir að um leynilegar kosningar sé að ræða, að Dorrit hafi kosið manninn sinn, hann Ólaf Ragnar.