Lífið

Dóri DNA óskar eftir nýju heimili

Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, leitar nú logandi ljósi að íbúð á Akureyri.

Gerir hann kröfu um að minnsta kosti sjötíu fermetra til afnota þar nyrðra með haustinu, og þætti vænt um að fá ábendingar sendar beint í tölvupóstinn.

Hyggst Dóri flytjast búferlum þar sem leiklistargyðjan kallar, en hann mun í slagtogi við leikkonuna Sögu Garðarsdóttur, sem er vægast sagt sjóðandi heit um þessar mundir, skella upp leiksýningu á Akureyri næsta vetur.

Sannkallaður hvalreki fyrir norðlenskt menningarlíf, en tvíeykið er mögulega það fyndnasta á landinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×