Innlent

Dóra Björt formaður nýstofnaðs Femínistafélags Pírata

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Valgerður Árnadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Helena Magnea Stefánsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson sitja í félaginu.
Valgerður Árnadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Helena Magnea Stefánsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson sitja í félaginu. Píratar
Stofnfundur Femínistafélags Pírata var haldinn í gær. Fyrsti formaður félagsins er Dóra Björt Guðjónsdóttir. Dóra Björt Guðjónsdóttir er fyrrum formaður Ungra Pírata og stjórnmálafræðingur sem lærði við Oslóarháskóla.

Ritari félagsins er Helena Magnea Stefánsdóttir og Valgerður Árnadóttir er gjaldgeri. Varamenn eru Helgi Hrafn Gunnarsson og Elín Eddudóttir.

Hlutverk félagsins er að standa fyrir málfundum, námskeiðum og fræðslu af ýmsu tagi í þeim tilgangi að efla málefnalega umræðu um femínísk málefni, styðja og efla þá einstaklinga sem starfa innan félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×