Innlent

Dópaður og með óspektir í Hafnarfirði

Gissur Sigurðsson skrifar
Friðsæll Hafnarfjörður en róstursamara var og vetrarlegra í nótt þegar maður nokkur undir áhrifum lét öllum illum látum.
Friðsæll Hafnarfjörður en róstursamara var og vetrarlegra í nótt þegar maður nokkur undir áhrifum lét öllum illum látum. visir/gva
Útúrdópaður karlmaður var handtekinn í Hafnarfirði um klukkan hálf eitt í nótt, eftir að hafa verið með óspektir og reynt að skalla lögregluþjóna og hrækja á þá.

Lögregluþjónarnir höfðu nokkru áður haft afskipti af honum og bent honum á að koma sér heim, en í stað þess tók hann upp fyrri hegðan og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hann á nú yfir höfði sér ýmsar kærur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×