Innlent

Dópaður á 118 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi

Gissur Sigurðsson skrifar
Tveir ökumenn undir áhrifum fíkniefna voru stöðvaðir í nótt.
Tveir ökumenn undir áhrifum fíkniefna voru stöðvaðir í nótt. Vísir/Stefán
Ökumaður var tekinn úr umferð á Vesturlandsvegi í gærkvöldi eftir að bíll hans mældist á 118 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80. Hann reyndist einnig undir áhrifum fíkniefna. 

Sömu söguna er að segja um ökumann sem tekinn var á Breiðholtsbraut um klukkan hálf tvö í nótt. Lögreglu hafði verið tilkynnt um hann á ofsa hraða skömmu áður. Hann er líka réttindlaus og hefur ítrekað verði stöðvaður í akstri eftir sviptingu, að sögn lögreglu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×