Lífið

Dóp og slagsmál í Quarashi-mynd

Heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi. Hún kemur út með haustinu.
mynd/ÞÖK
Heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi. Hún kemur út með haustinu. mynd/ÞÖK
Ný heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi. Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson, sem vann mikið með sveitinni á sínum tíma, kemur að vinnslu myndarinnar. Hann mun þó ekki leikstýra myndinni.

„Ég á ótrúlega mikið af myndefni. Ég gerði eina heimildarmynd um þá og ógrynni af tónlistarmyndböndum. Það eru líka til heilu tónleikarnir sem voru teknir upp í Japan og stórir tónleikar í Ameríku með mörgum myndavélum," segir Gaukur en efnið hefur aldrei áður litið dagsins ljós. Einnig er til myndefni af Quarashi í hljóðveri með bandarísku rappsveitinni Cypress Hill.

Gaukur gerði heimildarmyndina „Um landið á lyfjum" sem fjallaði um Quarashi og kom út árið 1999. Þá elti hann hljómsveitina út um allar trissur með myndatökuvélina.

Nýja heimildarmyndin er unnin í tilefni þess að Quarashi kemur saman á nýjan leik á Bestu útihátíðinni sem verður haldin í júlí. Popparinn Birgir Örn Steinarsson, kynningarfulltrúi Quarashi, er að skrifa handrit myndarinnar og vinna úr myndefninu ásamt liðsmanni sveitarinnar Sölva Blöndal. Æfingar Quarashi í sumar í tengslum við útihátíðina verða teknar upp fyrir myndina sem og endurkomutónleikarnir sjálfir.

„Allir liðsmenn Quarashi eru búnir að lofa að tala mjög opinskátt um tíma sinn í hljómsveitinni. Öll slagsmálin, öll rifrildin, allt dópið og allt saman fær að fljóta með," segir Birgir Örn og á þar við dópið sem var allt í kringum sveitina. Stefnt er að útgáfu myndarinnar með haustinu. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×