Lífið

Dönsk leikkona eignast sitt fimmta barn 54 ára gömul

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Brigitte eignaðist sitt fimmta barn á dögunum, 54 ára gömul.
Brigitte eignaðist sitt fimmta barn á dögunum, 54 ára gömul. Vísir/Getty
Danska leikkonan Brigitte Nielsen eignaðist sitt fimmta barn 54 ára að aldri. Stúlkubarnið, sem hefur fengið nafnið Frida, kom í heiminn á föstudaginn í Los Angeles. Þetta er fyrsta barn Brigitte með fimmta eiginmanni sínum ítalska módelinu Mattia Dessi. Brigitte hefur leikið í myndum á borð við Beverly Hills Cop II og Red Sonja.

Fyrir á Brigitte fjóra syni Julian Winding 34 ára, Killian Gastineau 28 ára og Douglas Meyer 25 ára og Raoul Meyer 23 ára. Brigitte var einnig gift leikaranum Sylvester Stallone á árunum 1985 til 1987 en þau eignuðust engin börn saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×