Erlent

Dönsk hjúkrunarkona sakfelld: Gaf þremur sjúklingum banvæna lyfjablöndu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Dönsk hjúkrunarkona var fyrir helgi dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt þrjá sjúklinga sinna. Hjúkrunarkonan, sem er 31 árs gömul, hefur áfrýjað dómnum. Í Danmörku er lífstíðarfangelsi 16 ár eins og hér á Íslandi. Hún má aldrei aftur sinna starfi heilbrigðisstarfsmanns. Frá þessu er greint á vef BT.

Sjúklingarnir þrír létust af of stórum lyfjaskammti sem innihélt bæði morfín og róandi lyfið stesolid. Taldi dómurinn sýnt að ekki hefði verið mögulegt að skammtarnir hefðu verið gefnir sjúklingunum fyrir slysni. Þá taldi dómurinn að næg líkindi væru milli dauða sjúklinganna þriggja til að draga mætti þá ályktun að sama manneskja stæði að baki þeim öllum.

Magn morfíns sem sjúklingarnir fengu var í öllum tilvikum á milli 40 og 50 grömm og magnið af stesolid á milli sex og fimmtán grömm.

Sjúklingarnir þrír voru þau Arne Herskov, 72 ára, Anna Lise Poulsen 86 ára og Viggo Petersen, 66 ára. Þá var hjúkrunarfræðingurinn einnig ákærð fyrir tilraun til manndráps á hinum 72 ára gamla Maggi Rasmussen.

Tveir sjúklinganna létust á sömu næturvakt aðfaranótt 1. mars árið 2012 en sá þriðji þremur dögum síðar. Vitni gátu borið fyrir um að þau hefðu séð hjúkrunarfræðinginn með sprautu í hendi koma út af að minnsta kosti einni sjúkrastofunni.

Verjandi konunnar sagði að hún ætti ekki að vera sakfelld fyrir dauða sjúklinganna þar sem þeir voru fyrir í svo slæmu ástandi. Því hafi verið um líknandi meðferð að ræða. Saksóknari sagði það enga afsökun og að þetta væri svo slæm aðhlynning hjá heilbrigðisstarfsmanni að það væri eiginlega ekki hægt að kalla þetta aðhlynningu. „Jafnvel þó sjúklingarnir séu þegar dauðvona hefur enginn rétt á að myrða þá,“ sagði saksóknarinn, Michael Boolsen.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×